
HULDU-HEIMSÓKNIR
Mælanleg söluaukning
Better Business er leiðandi fyrirtæki í hulduheimsóknum (Mystery Shopping) á Íslandi og hefur byggt upp sterka stöðu í yfir 20 ár.
Fyrirtækið er það eina á Íslandi sem er aðili að MSPA (Mystery Shopping Professionals Association), sem tryggir um leið alþjóðlega viðurkennda aðferðafræði og gæðastaðla.
Með rætur á norrænum markaði sem ná áratugi aftur í tímann, býður Better Business upp á sérþekkingu, strúktúr og trúverðugleika sem greinir okkur frá öðrum.
Hjá okkur eru skráðar yfir 1.000 Huldur (shoppers) sem spanna allan aldur, öll kyn um allt land. Þær hafa ólíkan bakgrunn er varðar menntun, starfsgreinar og aðra lýðfræðilega þætti og því auðvelt að finna réttu einstaklingana fyrir hverja hulduheimsókn.
Við söfnum ekki bara gögnum heldur umbreytum við raunverulegri reynslu í skýrar og framkvæmanlegar úrbætur sem auka sölu, styrkja gæði og tryggja að reksturinn skili árangri.
